Borga 40 milljarða skatt á einu bretti

Skattur sem leggst á Kerecis vegna sölu á hugverkaréttindum til danska fyrirtækisins Coloplast verður greiddur í einu lagi í haust. Heimild til að deila greiðslum á sjö ár verður ekki nýtt. Því á ríkissjóður von á 40 milljarða króna eingreiðslu. Þessu greinir Morgunblaðið frá í dag og vísar bæði í árshlutareikning Kerecis og viðtal við Guðmund Fertram Sigurjónsson, stofnanda Kerecis. Coloplast er móðurfélag Kerecis. Morgunblaðið hefur eftir Guðmundi að skattgreiðslan sé til marks um gríðarlega verðmætasköpun á Vestfjörðum á síðustu árum.