Gömul saga og ný segir að við séum ekki öll steypt í sama mót, sem betur fer. Þegar dætur mínar eru spurðar hvað þeim langi að verða þegar þær verði stórar eru svörin alls konar, yfirleitt nokkur í einu og ný koma fram í hverri viku. Þeim hefur þó ekki enn dottið í hug að læra latínu eins og pabbi sinn.