Atvinnuvegaráðherra, Hanna Katrín Friðriksson fékk í morgun opið bréf frá Eurogroup for Animals, Animal Welfare Foundation og Dýraverndarsambandi Íslands. Bréfið er einnig sent til Hrannar Ólínu Jörundsdóttur, forstjóra Matvælastofnunar og Þóru J. Jónasdóttur, yfirdýralæknis Matvælastofnunar. Í bréfinu skora samtökin á þær að framfylgja reglum varðandi blóðmerahald á Íslandi. Stjórnvöld eru hvött til að fylgja reglugerð sem kveður á um að blóðtaka úr fylfullum hryssum falli undir rannsókn á dýrum í vísindaskyni en sé ekki skilgreind sem hefðbundinnn landbúnaður líkt og fyrirtækið Ísteka fer fram á og lætur reyna á fyrir dómi. Hormón sem eykur frjósemi í iðnaðarbúskap Hormónið sem fyrirtækið Ísteka vinnur úr blóði fylfullra hryssna á Íslandi er aðallega notað sem frjósemislyf fyrir svín í verksmiðjubúum hér á landi, í Evrópu og víðar. Rannsóknir á dýrum í vísindaskyni lúta mun strangari reglum en hefðbundinn landbúnaður. Samtökin segja afar mikilvægt fyrir velferð hestanna að farið sé eftir núgildandi reglugerðum. Fyrirtækið Ísteka stendur nú í málaferlum við íslenska ríkið og beðið er eftir niðurstöðu EFTA dómstólsins um hvort starfsemin falli undir notkun dýra í vísindaskyni eða landbúnaðarstarfsemi þar sem svigrúmið er mun meira. Stefnt er að því aðalmeðferð verði 11. mars. Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra hefur sagt í fréttum RÚV að hún tjái sig ekki um málið meðan það er til meðferðar hjá dómstólum. Fimm alþjóðleg félagasamtök og tvenn íslensk afhentu atvinnuvegaráðherra 300.000 undirskriftir í október þar sem íslensk stjórnvöld eru hvött til að banna blóðmerahald. Samtökin vísa í Evróputilskipun um vernd dýra sem eru notuð í vísindaskyni en þar segir að þegar mögulegt er að nota aðrar aðferðir þar sem ekki eru notuð lifandi dýr skuli það ávallt gert. Til séu kemísk efni sem þjóni sama tilgangi Þau benda á að til séu árangursríkar leiðir til að auka frjósemi í iðnaðarbúskap sem falla mun betur að dýravelferð en notkun PMSG hormónsins. Það er unnið er úr blóði fylfullra íslenskra hryssa. Í bréfinu segir að til sé fjöldi kemískra lyfja sem þjóna sama tilgangi. Þau sé hægt að búa til án þess að nokkur dýr meiðist. „Auk þess er hægt að gera fjölda ráðstafanna í búfjárrækt sem byggja á aukinni velferð dýranna sem leiða til aukinnar frjósemi. PMSG er aðallega notað í verksmiðjubúskap þar sem velferð dýra er virt að vettugi, helst í svínarækt,“ segir í bréfinu.