Óttar og Jón Arnór látnir róa vegna tengsla við við­skipta­vin

Óttar Helgason og Jón Arnór Stefánsson voru látnir hætta störfum hjá einkabankaþjónustu Fossa vegna eignarhluta þeirra í félagi sem hefur verið í viðskiptum við einkabankaþjónustuna. Einn eigenda félagsins er Magnús Sverrir Þorsteinsson, kenndur við bílaleiguna Blue Car Rental.