Skipulagsstofnun efast um að réttlætanlegt sé að veita leyfi fyrir vindorkuvirkjun að Sólheimum í Dölum vegna neikvæðra áhrifa á fuglalíf, ekki síst haferni. Qair hafði kynnt áform um að reisa þar 29 vindmyllur, allt að 200 metra á hæð. Umfangsmiklar framkvæmdir Qair vill reisa 29 vindmyllur í landi Sólheima á Laxárdalsheiði í Dalabyggð, sem verða allt að 200 metrar á hæð. Til að draga úr áflugi fugla gerir Qair ráð fyrir að einn spaði á hverri vindmyllu og neðsti hluti turns verði hafðir svartir. Svo er gert ráð fyrir blikkandi ljósi á fimm vindmyllum til að draga úr hættu á flugslysum. Ljósin blikka hvít á daginn og rauð á nóttunni. Undir vindmyllurnar varða steyptar undirstöður, 16-30 metrar í þvermál. Við hverja myllu þarf plan fyrir krana meðan verið er að reisa vindmylluna, rúmlega hektara stórt. vindmylluhlutarnir verða skipaðir upp frá Grundartangahöfn og keyrðir í Dalina um Hringveg 1, Vestfjarðaveg 60 í Dalina og þaðan um Laxárdalsveg. Í skýrslunni kemur fram að vegna óeðlilegrar stærðar og mikillar þyngdar bílanna þurfi að fara yfir ástand vegakerfisins á flutningsleiðinni. Stór mannvirki sem sjáist víða að Í áliti Skipulagsstofnunar um umhverfismatsskýrslu Qair fyrir 209 MW vindaflsvirkjun á Laxárdalsheiði kemur fram að vindmyllurnar séu af allt annarri stærðargráðu en þekkist í náttúru Íslands. Þær myndu sjást víða að og yrðu sérstaklega áberandi fyrir íbúa í Laxárdal, ferðamenn og laxveiðimenn. Þetta gæti haft áhrif á ferðaþjónustu. Ekki sé tekið fram hvað gert er ráð fyrir ljósum á mörgum vindmyllum en ljóst að blikkandi ljós í myrkri geti haft truflandi áhrif. Þá er bent á veruleg neikvæð samlegðaráhrif með öðrum fyrirhuguðum vindorkuvirkjunum á Vesturlandi og Norðurlandi vestra. Afföll á fuglum líklega vanmetin Skipulagsstofnun varar við áhrifum á farfugla en mestu máli skipti áhrifi á haferni. Í álitinu segir að virkjunin valdi afföllum á fuglum sem séu líklega vanmetin í umhverfismatsskýrslu Qair. Þá missi fuglar búsvæði og gæði þeirra rýrni á stórum hluta alþjóðlega mikilvægs fuglasvæðis. Jafnframt er tekið undir umsögn Náttúrufræðistofnunar um að æskilegra væri að finna vindmyllunum aðra staðsetningu. Í áliti Skipulagsstofnunar segir jafnframt: „Áhrif á fugla eru ein af neikvæðustu umhverfisáhrifum vindorkuvera. Áhrifaríkasta leiðin til að lágmarka þau er að staðsetja vindorkuver utan mikilvægra búsvæða fugla og ljóst að mótvægisaðgerðir munu aldrei skila sambærilegum árangri.“ Því sé sérstaklega mikilvægt að tekið sé tillit til fugla við staðarval. Æskilegt að setja skilyrði um niðurrifstryggingu Loks segir stofnunin vindmyllurnar geta haft verulega neikvæð umhverfisáhrif og efast er um að réttlætanlegt sé að veita leyfi fyrir framkvæmdinni. Ef leyfið verður veitt bendir stofnunin á að fyrst þurfi sérstaklega að huga að vöktun á fuglalífi, vatnalífi og endurheimt votlendis. Þá sé mikilvægt að leyfi og rekstur séu tímabundin og kveðið á um að gengið verði frá svæðinu þegar notkun lýkur. Loks segir stofnunin æskilegt að setja skilyrði um niðurrifstryggingu.