Ítalskur gestakokkur leiðir eldhúsið á Fjallkonunni á Food and Fun

Einn þeirra kokka sem vekja forvitni á Food and Fun í ár er Diletta Zenna, sem mun leiða eldhúsið á Fjallkonunni. Zenna er fædd árið 1989 í litlum bæ nærri Feneyjum að nafni Pontelongo í Padova-héraði, þar sem fjögur þúsund manns búa. Staðurinn er þekktur sem „sykurþorpið“ vegna einnar mikilvægustu sykurverksmiðju Ítalíu.