Saksóknarar við alþjóðlega sakamáladómstólinn segja Rodrigo Duterte, fyrrverandi forseti Filippseyja, hafa valdið dauða þúsunda manna í svokölluðu stríði gegn fíkniefnum. Á næstu mánuðum liggur fyrir hvort hann verði ákærður fyrir glæpi gegn mannkyni. Saksóknararnir saka Duterte um beina aðild að morðum að minnsta kosti 76 manns á árunum 2013 til 2018. Það sé aðeins brot af þeim sem voru drepnir í nafni hins svokallaða stríðs gegn fíkniefnum, sem Duterte hrinti af stað á stjórnartíð sinni, sem borgarstjóri í Davaó og síðar forseti Filippseyja. Duterte er grunaður um að hafa fyrirskipað dauða fjölda manna án dóms og laga. Þúsundir liggja í valnum eftir hið svokallaða stríð gegn fíkniefnum. Saksóknarar vilja að hann verði ákærður fyrir glæpi gegn mannkyni og leggja fram gögn í þessari viku máli sínu til stuðnings. Dómstóllinn tekur svo ákvörðun um ákæru innan sextíu daga. Lætur ekki sjá sig í réttarsal Meðal þess sem komið hefur fram í þessari viku eru ásakanir um svokallaðan dauðalista Dutertes. Saksóknarar segja að margir hafi verið myrtir í kjölfar þess að Duterte sakaði þá opinberlega um tengsl við fíkniefnanotkun eða fíkniefnaviðskipti. Hann hafi einnig gortað sig af því að bera ábyrgð á drápunum. Duterte neitar sök og ætlar ekki að láta sjá sig í dómsal í vikunni. Verjandi hans segir hann of veikburða en andstæðingar hans saka hann um heigulshátt.