Ævintýrabúðir og Vinahópar Reykjadals falla niður í sumar

Gló styrktarfélag segir í tilkynningu nauðsynlegt að fella niður Ævintýrabúðir og Vinahópa Reykjadals í sumar, þar sem fjármögnun hefur ekki fengist. Ekki hafi fengist svör frá ráðuneytunum um að halda verkefnunum áfram og því ekki forsendur til að halda þjónustunni áfram að svo stöddu, segir í tilkynningunni. „Við erum búin að vera að bíða og bíða, það er langt síðan við heyrðum í þeim og létum vita að við þyrftum að fá svör, upp á að fá starfsfólk,“ segir Jórunn Edda Óskarsdóttir, formaður stjórnar Glóar. „Það virðist vera að við séum bara búin að missa húsnæðið, eins og fyrir Ævintýrabúðirnar, við erum bara orðin of sein.“ Önnur starfsemi óbreytt í Reykjadal í sumar Gló styrktarfélag rekur meðal annars sumarbúðir í Reykjadal fyrir börn og ungmenni með fatlanir. Ævintýrabúðir eru fyrir börn og unglinga með stuðningsþarfir tengdar ADHD, einhverfu eða andlegum áskorunum og Vinahópar fyrir ungt fatlað fólk á aldrinum 20 til 30 ára. Jórunn segir mjög miður að horfa á eftir verkefnunum, sem hafi skipt sköpum fyrir þennan hóp barna og ungmenna við að rjúfa félagslega einangrun. „Þetta eru tvö stór verkefni sem við höfum verið með í gangi í sex ár og þetta er bara rosalega mikið tómstundatækifæri og svo sorglegt að við getum ekki boðið þeim upp á þetta. Þetta er svo gott upp á að rjúfa einangrun.“ Stjórn Glóar skorar á stjórnvöld að huga vel að þessum viðkvæmu hópum barna og ungmenna. Hefðbundin starfsemi í sumarbúðunum í Reykjadal verður óbreytt. Um 250 börn á aldrinum 8-19 ára hafa sótt um dvöl þar næsta sumar.