Í borgarstjórnarkosningunum 2022, fékk Sjálfstæðisflokkurinn 24,5 prósent atkvæða og sex borgarfulltrúa af 23. Eftir prófkjör flokksins skipuðu þessir einstaklingar efstu sæti. 1. sæti Hildur Björnsdóttir sæti Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir sæti Kjartan Magnússon sæti Marta Guðjónsdóttir sæti Björn Gíslason sæti Friðjón R. Friðjónsson Samkvæmt könnun sem Gallup gerði fyrir Viðskiptablaðið í janúar fengi Sjálfstæðisflokkurinn 32,7% fylgi og átta borgarfulltrúa. Síðan þá hafa bæði Miðflokkur og Viðreisn kynnt sína oddvita. Róttækar breytingar liggja í loftinu Ákveðið var að efna til leiðtogaprófkjörs um 1. sæti listans fyrir kosningarnar í maí og þar var Hildur Björnsdóttir ein í kjöri og hún skipar því fyrsta sæti listans. Guðlaugur Þór Þórðarson alþingismaður hafði verið sterklega orðaður við að hann myndi gefa kost á sér og var byrjað að undirbúa það. Hann hætti hins vegar við á síðustu stundu og kom það mörgum á óvart. Nú er sterkur orðrómur um að gera eigi róttækar breytingar á framboðslistanum en það er í höndum uppstillingarnefndar sem kynnir listann á Nasa við Austurvöll næstkomandi laugardag. Formaður uppstillinganefndar er Bessí Jóhannsdóttir, formaður Samtaka eldri sjálfstæðismanna. Sjálfstæðismenn óþreyjufullir að komast í meirihluta Óhætt er að fullyrða að Sjálfstæðismenn séu óþreyjufullir að komast í meirihluta í borginni sem með örfáum undantekningum hefur ekki tekist síðan 1994. Brynjari Níelssyni fyrrverandi þingmanni hefur verið boðið sæti á listanum og hann er tilbúinn í það. Margir telja það geta verið ákveðið útspil eftir að Miðflokkurinn tilkynnti að Ari Edwald, fyrrum sjálfstæðismaður, yrði oddviti þeirra í borginni. Þá herma heimildir að Ragnhildi Öldu verði boðið öruggt sæti á listanum en þau fjögur, Kjartan, Marta, Björn og Friðjón, verði ekki valin í örugg sæti. Margir nefndir en leynd yfir listanum Þá hafa önnur nöfn verið nefnd, Albert Guðmundsson formaður Varðar, Bjarni Guðjónsson fyrrverandi fótboltakappi og Sigrún Ásta Einarsdóttir Grafarvogsbúi en ekkert er staðfest í þeim efnum. Uppstillinganefndin heldur spilunum þétt að sér og ekkert er gefið upp fyrr en eins og áður segir á fundinum á Nasa næstkomandi laugardag. Sjálfstæðismenn í Reykjavík kynna framboðslista fyrir borgarstjórnarkosningarnar á laugardaginn. Búist er við róttækum breytingum á listanum frá því fyrir fjórum árum þar sem aðeins oddvitinn Hildur Björnsdóttir er örugg með sitt sæti.