Fimm ára nemendur leikskólans Grandaborgar í vesturbæ Reykjavíkur, sem lokaður var vegna myglu í hátt í fjögur ár, fengu að snúa þangað aftur í morgun eftir viðgerð. Í millitíðinni dvöldu börnin á ýmsum leikskólum, en mörg þeirra hófu leikskólanám sitt á Grandaborg. „Við erum að flytja aftur, af því að hún var mygluð,“ svarar Eiríkur Ingi Ellertsson fimm ára nemandi í Grandaborg spurður hvers vegna förinni væri heitið aftur á Grandaborg. Joao Árelíus Marques Þormóðsson jafnaldri hans var á Grandaborg þegar hann var eins árs og sagðist aðspurður muna eftir öllu frá þeirri dvöl. Nýbúin í aðlögun þegar myglan fannst Í dag var tekið á móti síðasta hópnum á Grandaborg, elstu börnunum sem hafa dvalið á Hagaborg að undanförnu. Þau höfðu nýlokið aðlögun þegar þeim var gert að fara af Grandaborg haustið 2022 eftir að skólplögn brast og mygla fannst í húsinu. Grandaborg er ekki eina leikskólahúsnæðið í Reykjavík sem hefur þurft að loka í lengri eða skemmri tíma vegna viðgerða eða endurbóta. Núna er engin starfsemi í fimm leikskólahúsum vegna viðgerða eða framkvæmda: það eru Brákarborg, Árborg, Hagaborg, annað af tveimur húsum leikskólans Borgar og Vinagerði. Samkvæmt upplýsingum frá Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar eru börnin sem dvöldu á þessum leikskólum öll komin með vistun á öðrum leikskólum. Áskorun að vera á mörgum stöðum Grandaborgarbörnin komu víða við á þessum tæpu fjórum árum sem leikskólinn var lokaður. „Þau byrjuðu að vera á þremur stöðum en enduðu svo í Hagaborg og Gullborg og hafa verið þar síðan,“ segir Erna Guðlaugsdóttir leikskólastjóri á Grandaborg. Þannig að þau voru á fimm stöðum? „Já, samtals. Að sjálfsögðu hefur það verið áskorun að vera á mörgum stöðum.“ Er gott að vera komin aftur í Grandaborg? „Já og það er svo gaman að sjá börnin hérna úti að leika þegar við vorum að koma áðan í skrúðgöngunni. Að sjá börn að leik í garðinum - það er bara yndislegt.“ Huggulegt með mörgum herbergjum Vinkonurnar Fanney Ída Ólafsdóttir og Guðrún María Guðfinnsdóttir eru báðar fimm ára og voru að snúa aftur á Grandaborg eftir þriggja og hálfs árs fjarveru. Þær voru með á hreinu hvers vegna loka hefði þurft Grandaborg. „Af því að það kom mygla,“ sögðu þær. Og Ísafold A.H. Walker og Vésteinn Kári Atlason, sem bæði eru fimm ára voru sannfærð um að það yrði gott að dvelja á Grandaborg að nýju. „Það er svo huggulegt og svona,“ sagði Vésteinn Kári. Ísafold tók undir það. „Og það eru mörg herbergi,“ sagði hún. Leikskólinn Grandaborg er nú fullskipaður börnum eftir að hafa verið lokaður í hátt í fjögur ár vegna myglu og skemmda. Á meðan var börnunum komið fyrir á fimm leikskólum. Leikskólastjóri segir þetta hafa verið áskorun.