66 skip mega ekki sigla vegna ófullnægjandi skoðunar björgunarbáta

Samgöngustofa hefur ógilt skoðun á gúmmíbjörgunarbátum á 66 skipum, sem teljast óhaffær þar til búið verður að skoða bátana á ný af viðurkenndum þjónustuaðila og staðfest að þeir uppfylli gildandi öryggiskröfur. Ákvörðunin byggir á frávikum sem komu í ljós við nýlega úttekt. Samkvæmt upplýsingum frá Samgöngustofu fólust frávikin meðal annars í ófullnægjandi skoðun gúmmíbátanna. Utanumhald um skoðanir, eins og útfylling skoðanaskýrslna og umsýsla skjalavörslu var einnig óviðunandi. Þekkingu skoðunaraðila var ábótavant að mati Samgöngustofu. Eftirlit með skoðunum á björgunarbúnaði var hert í haust eftir að í ljós komu tilvik þar sem frágangur á bátunum var ekki fullnægjandi. Ógildingin nær til alls 87 gúmmíbjörgunarbáta á 66 skipum en tólf þeirra hafa verið á sjó að undanförnu.