Noregskonungur lagður inn á sjúkrahús á Tenerife

Haraldur Noregskonungur var í kvöld lagður inn á sjúkrahús á eyjunni Tenerife þar sem hann er í fríi með eiginkonu sinni. NRK greinir frá þessu og hefur hafið aukaútsendingu vegna málsins. NTB / EPA-EFE Haraldur var lagður inn á sjúkrahúsið Universitario Hospiten Sur vegna sýkingar og vökvaskorts. Í fréttatilkynningu frá norsku konungshöllinni segir að líðan hans sé góð eftir atvikum. Nýjar upplýsingar um heilsu konungsins verði birtar á morgun. Líflæknir konungs mun ferðast til Tenerife til að aðstoða heilbrigðisstarfsfólk á staðnum. Haraldur Noregskonungur varð 89 ára gamall fyrr í febrúar.