Fjögur lið eru komin í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta eftir leiki kvöldsins. Fjögur lið bætast við á morgun þegar umspilið klárast. Augu margra voru á leik Inter Milan og norska liðsins Bodø/Glimt. Inter fór alla leið í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í fyrra en Glimt er í fyrsta skipti í þessari keppni. Liðið komst rétt svo inn í umspilið eftir að hafa endað í 23. sæti deildarkeppninnar þar sem Inter var í 10. sæti, aðeins stigi á eftir 8. sætinu sem gaf öruggt sæti í 16-liða úrslitunum. Norðmennirnir unnu fyrri leik liðanna sem fram fór í Bodø í síðustu viku, 3-1, og voru því í góðri stöðu fyrir leik kvöldsins. Eftir markalausan fyrri hálfleik nýtti Jens Petter Hauge sér mistök í vörn Inter og kom norska liðinu yfir á 58. mínútu. Håkon Evjen bætti svo um betur tæpu korteri seinna og tvöfaldaði forystu Glimt. Inter sótti hart að marki Norðmannanna og minnkaði muninn skömmu síðar með marki Manuel Akanji. Fleiri urðu mörkin hins vegar ekki og frábær 2-1 sigur Glimt niðurstaðan, liðið er þar með komið í 16-liða úrslitin eftir samanlagt 5-2 sigur á ítalska stórveldinu. Í hinum leikjum kvöldsins hafði Atlético Madrid betur gegn Club Brugge, 4-1, en liðin höfðu gert 3-3 jafntefli í fyrri leiknum. Þar var Norðmaður í sviðsljósinu, Alexander Sørloth, en hann skoraði þrennu í þessum örugga sigri. Newcastle var í góðri stöðu gegn Qarabag eftir 6-1 sigur í fyrri leiknum en leik kvöldsins lauk með 3-2 sigri Newcastle. Bayer Leverkusen og Olympiacos gerðu svo markalaust jafntefli en 2-0 sigur Bayer í fyrri leiknum fleytti þeim áfram. Það eru því Atlético Madrid, Newcastle, Leverkusen og Bodø/Glimt sem eru komin áfram í 16-liða úrslit og bætast þar í hóp Arsenal, Bayern Munchen, Liverpool, Tottenham, Barcelona, Chelsea, Sporting og Manchester City sem enduðu í efstu átta sætum deildarkeppninnar. Á morgun kemur svo í ljós hvaða fjögur lið til viðbótar verða í 16-liða úrslitunum.