Friður ekki í sjónmáli en stríðsvél Rússa veikist

Friður milli Rússlands og Úkraínu er ekki í sjónmáli að sögn Jóns Ólafssonar, prófessors við Háskóla Íslands og sérfræðings í málefnum Rússlands. „Svo virðist alltaf vera að stærstu málin séu alltaf jafn óleyst og áður,“ segir hann. Þó að samningaviðræður séu í gangi og oft berist fregnir um að þær gangi vel og að þeim miði áfram virðist stærstu málin alltaf jafn óleyst og áður. „Það varðar auðvitað landakröfur Rússa sem þeir eru ekkert tilbúnir að slá neitt af,“ segir Jón. Ekkert nýtt verið sagt „Síðan eru það öryggistryggingarnar sem Úkraínumenn leggja náttúrulega höfuðáherslu á og eru algjörlega lykillinn að því að það sé hægt að ganga að einhverjum kröfum Rússa, það er að segja að Úkraínumenn sjái fram á einhvers konar öryggi á því landsvæði sem þeir munu hafa eftir samninga. Þannig að við sjáum ekki að það sé neitt að þokast, það er ekkert nýtt sem hefur verið sagt í þessu síðustu vikur eða mánuði.“ Þó að margt sé að gerast í stríðinu og margar breytingar séu að verða á vígvellinum segir Jón að engar breytingar eigi sér stað núna sem ýti á ríkin að semja um frið. Margt grafi undan stríðsvél Rússa Jón segir stuðning við varnir Úkraínu ekki til þess eins fallinn að draga stríðið á langinn „Á meðan það kemur ekkert útspil frá Rússum, það kemur engin tilslökun, ekkert sem bendir til þess að rússnesk stjórnvöld hafi einu sinni áhuga á því að umgangast úkraínsk stjórnvöld sem jafningja, þá held ég að svo sé ekki.“ Þá grafi margt undan stríðsrekstri Rússa í dag. „Það hefur alveg verið vitað frá upphafi, eftir að Rússar klúðruðu sinni framsókn í byrjun, að þetta snerist annaðhvort um að knýja þá til samninga eða sigra þá í stríðinu,“ segir Jón. Ólík sjónarmið séu á lofti um styrk Rússa og hversu lengi þeir haldi út. „En ég held að eins og staðan sé núna, það er svo margt að grafa undan stríðsvél og efnahagskerfi Rússlands, að það að útiloka að Rússland veikist svo mikið að það verði nauðbeygt til að gera samninga sem eru miklu hagstæðari fyrir Úkraínu en útlitið er fyrir nú eða hreinlega að draga sig til baka, þetta er nokkuð sem við getum alls ekki útilokað.“ Jón Ólafsson, sérfræðingur í málefnum Rússlands, talaði um stöðu innrásarstríðsins milli Rússlands og Úkraínu í Kastljósi í kvöld. Þáttinn má sjá í heild sinni í spilaranum hér að neðan. Sérfræðingur í málefnum Rússlands segir samningaviðræðum um frið milli Rússlands og Úkraínu ekki miða áfram. Hann segir þó ekki hægt að útiloka að Rússar muni þurfa að samþykkja samning hagstæðan Úkraínu eða draga sig til baka.