Sjö gámar frá Ís­landi á leið til Úkraínu

Sjö gámar af búnaði og varahlutum frá Landsneti, Veitum og Norðurorku sem nýtast munu við enduruppbyggingu orkuinnviða Úkraínu verða sendir til Úkraínu í vikunni. Þetta er meðal þess sem Kristrún Frostadóttir upplýsti Úkraínumenn um í dag í heimsókn sinni til Kænugarðs.