Í það minnsta 30 hafa látið lífið og nær 40 er saknað eftir að úrhellisrigning olli flóðum og aurskriðum í Minas Gerais, fylki í suðausturhluta Brasilíu, í gærkvöld. Heimili og byggingar hrundu og slökkviliðsmenn og borgarar leita þeirra sem saknað er í rústunum. Mörgum hefur þegar verið bjargað. Flest dauðsföll hafa verið tilkynnt í borginni Juiz de Fora, en þar fórust 18 að sögn yfirvalda. Stjórnvöld í Brasilíu hafa lýst yfir neyðarástandi í borginni. Börn meðal þeirra sem létust Luiz Inácio Lula da Silva, forseti Brasilíu, sendir innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldna fórnarlambanna og þeirra sem misstu heimili sín. Um 440 manns hafa misst heimili sín í Juiz de Fora. Þar hefur sveitarfélagið útvegað neyðarskýli og óskað eftir gjöfum á vatni, mat, fatnaði og hreinlætisvörum. Margarida Salomão, borgarstjóri Juiz de Fora, hefur lýst yfir þriggja daga sorg til minningar um alla þá sem létu lífið í borginni. Borgin hefur hingað til ekki gefið út neinar opinberar upplýsingar um hver hin látnu eru en vitað er að börn eru meðal þeirra sem létust og er saknað. Úrkomusamasti febrúar í sögu borgarinnar Þetta hefur verið úrkomusamasti febrúarmánuður í sögu Juiz de Fora að sögn yfirvalda á svæðinu en úrkoman hefur nú þegar verið tvöfalt meiri en búist var við í mánuðinum. Veðurstofa Brasilíu gaf í dag út viðvörun vegna mikilla rigninga fyrir allt Minas Gerais, Rio de Janeiro og 12 önnur fylki í landinu. Þrumuveður, flóð og aurskriður eru algeng sjón í Brasilíu. Árið 2024 létust tæplega 200 manns í ríkinu Rio Grande do Sul vegna mikilla rigninga, flóða og aurskriða sem höfðu áhrif á meira en tvær milljónir manna.