15 ríki stefna Bandaríkjastjórn vegna stefnu í bólusetningum barna

Fimmtán ríki í Bandaríkjunum undir stjórn demókrata ætla að stefna ríkisstjórn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta vegna takmarkana á bólusetningum barna sem stjórnvöld ríkjanna segja að gangi þvert á niðurstöður vísindarannsókna. Fyrr á þessu ári var tilkynnt um breytingar á bólusetningum barna þegar heilbrigðisráðherra Bandaríkjanna, Robert F. Kennedy yngri, greindi frá því að ráðuneytið mæli ekki lengur með því að öll börn fari í bólusetningar við ýmsum sjúkdómum svo sem COVID-19, inflúensu, rótaveiru og fleiri sjúkdómum. Þá eru sjö bólusetningar eingöngu ráðlagðar þeim börnum sem eru talin þurfa þær sérstaklega. Þessi ákvörðun hefur mætt mikilli andstöðu og gagnrýni, meðal lækna og heilbrigðisstarfsfólks. „Heilbrigðisráðherrann og Sóttvarnarstofnun Bandaríkjanna eru að virða að vettugi áratugalangar vísindarannsóknir, hunsa trúverðuga sérfræðinga innan læknisfræðinnar, ógna mannauði ríkjanna og veikja bandarísk börn,“ sagði saksóknari Kaliforníu, Rob Bonta, sem fer fyrir stefnunni ásamt saksóknaranum í Arisóna. Bandaríkjastjórn hefur réttlætt aðgerðir sínar í bólusetningum og sagt þær vera á pari við bólusetningar í öðrum ríkjum, til dæmis í Danmörku. Sérfræðingar í heilbrigðismálum hafa þó bent á að Danmörk sé fámennt land og frekar einsleitt með heilbrigðiskerfi sem sé fyrir alla. Saksóknari Arisóna, Kris Mayes, segir þó að í Bandaríkjunum sé önnur staða þar sem milljónir Bandaríkjamanna séu ekki með heilbrigðistryggingar. Það sé því ekki hægt að taka upp samskonar bólusetningarstefnu og í Danmörku án þess að taka upp samskonar heilbrigðiskerfi, og þessar breytingar leiði einfaldlega til þess að færri börn verði bólusett. Dregið hefur úr bólusetningum í Bandaríkjunum eftir COVID-19 faraldurinn og eftir að Trump var kjörinn forseti fyrir rúmu ári.