Kanadískur ráðherra fundar vill skýringar frá OpenAI

Evan Solomon, kanadískur ráðherra gervigreindar, fundar með yfirmönnum gervigreindarfyrirtækisins Open AI í Ottawa í Kanada nú í nótt eða á þriðjudagskvöld að staðartíma. Tilefni fundarins er fjöldaskotárásin í Tumbler Ridge í Bresku Kólumbíu fyrr í mánuðinum þar sem 8 voru myrt, þar af sex börn. Fyrirtækið greindi frá því í síðustu viku að það hefði bannað Chat GPT-reikning sem var í eigu árásarkonunnar Jesse Van Rootselaar einu og hálfu ári fyrir árásina vegna færslna um skotvopn og ofbeldi. Færslurnar þóttu þó ekki það alvarlegar svo fyrirtækið brást ekki frekar við þeim. Solomon sagðist vilja fá skýringar á því af hverju fyrirtækið varaði ekki yfirvöld við. BBC greinir svo frá.