Seldi bílinn fyrir kaffibrennsluofn

Aðalheiður Héðinsdóttir varð hugfangin af kaffimenningu á meðan hún bjó vestanhafs. Hún kynntist brennsluaðferðum hjá fagfólki og hafði hug á að stofna eigin kaffibrennslu heima á Íslandi. Til þess seldi hún heimilisbílinn og keypti brennsluofn sem hún flutti með sér yfir hafið. Eftir heimkomuna, árið 1990, stofnaði Aðalheiður kaffibrennslu Kaffitárs og hóf innflutning á kaffibaunum frá framandi heimshornum. Brennsluofninn góði er enn notaður við sérvalið úrvalskaffi eins og frá Guatemala, Kenýa, Kólumbíu og Eþíópíu. Brennslutími baunarinnar er lykilatriði og ekki síður kælingin að brennslu lokinni. „Málið er að kæla kaffið strax til að stoppa brennsluna, annars heldur baunin áfram að brenna og þá breytist eiginleikinn í henni“ segir Björn Kjartansson framkvæmdastjóri Kaffitárs.