Í dag: Barist um sæti í bikarúrslitunum

Það verður bikarveisla á Ásvöllum í vikunni þegar bikarkeppnirnar í handbolta klárast. Undanúrslit kvenna eru á dagskrá í kvöld, undanúrslitin karlamegin verða spiluð á fimmtudag og á laugardag fara úrslitaleikirnir svo fram. Allir leikirnir verða í beinni útsendingu á rásum RÚV. Undanúrslit kvenna í dag: 18:00 Haukar - Fram (RÚV 2) 20:15 Valur - KA/Þór (RÚV 2) Haukar eru ríkjandi bikarmeistarar kvenna eftir að hafa unnið Fram í úrslitaleiknum fyrir ári. Haukakonur eru í 3. sæti úrvalsdeildarinnar með 21 stig en Fram er í 5. sæti með 17 stig. Liðin hafa mæst þrisvar á tímabilinu, í fyrsta leik gerðu þau jafntefli, þann næsta vann Fram með tveimur mörkum en svo höfðu Haukar betur með átta mörkum þegar liðin mættust fyrr í mánuðinum. Í hinum undanúrslitaleiknum mætast svo Valur og KA/Þór. Valskonur eru ríkjandi Íslandsmeistarar og sitja sem stendur á toppi deildarinnar. KA/Þór komu aftur upp í úrvalsdeild fyrir tímabilið og eru í 6. sæti með 15 stig. Valur hefur unnið báða leiki liðanna á tímabilinu til þessa.