Snjókoma og vindur víðast hvar

Landsmenn eiga von á köldu og vindasömu veðri í dag. Víða verður snjókoma eða él en á austanverðu landinu helst þurrt. Eftir hádegi getur snjóað talsvert sums staðar á vestanverðu landinu. Þæfingur, snjóþekja og hálka eru víða á vegum. Veðurspáin er svohljóðandi: Suðvestan og sunnan átta til fimmtán metrar á sekúndu í dag og snjókoma eða él, en þurrt á austanverðu landinu. Frost eitt til sjö stig. Skúrir eða él sunnanlands í kvöld og hlýnar heldur. Suðaustan átta til fimmtán á morgun og rigning eða slydda með köflum sunnanlands, en úrkomulítið á Norðurlandi. Hiti frá frostmarki að sex stigum. Gengur í norðvestan tíu til átján með snjókomu og frosti á vestanverðu landinu síðdegis.