Komu tugum til aðstoðar þegar færð spilltist

Fjöldi fólks lenti í vandræðum á Austurlandi í gærkvöld þegar hvessti og skyggni versnaði. Björgunarsveitir fóru í Langadal þar sem einn bíll hafði farið út af veginum og vitað var um minnst fimm bíla á ferð. Þær keyrðu einnig um vegi í Öræfum, veginn til Vopnafjarðar og Hringveginn til að leita af sér grun um hvort þar væri fólk í vandræðum. Auk bílsins sem fór út af veginum í Langadal lenti annar út af veginum við Skjöldólfsstaði. Um þremur klukkustundum eftir að útkallið barst var búið að sækja vegfarendur sem voru á þessum slóðum en farartæki þeirra, á annan tug bíla, skilin eftir. Rétt fyrir klukkan átta í gærkvöld var óskað eftir aðstoð vegna rútu sem fór út af veginum um Fagradal rétt ofan við Reyðarfjörð. Fjórtán voru í bílnum. Björgunarsveitir fóru á jeppum og komu fólkinu til byggða en skildu rútuna eftir. Þessu til viðbótar var grennslast fyrir um gönguskíðamann sem hafði sést fara til fjalla í uppsveitum Skaftafellssýslu á leið inn á Fjallabak. Sá hafði skilið eftir ferðaáætlun á vef Safe Travel. Þegar haft var samband við manninn sagðist hann að allt væri í lagi hjá sér og kvaðst ætla að hinkra í tjaldi uns veðrið skánaði.