Rúta út af vegi í Fagradal og fleiri í vanda í hvassviðrinu
Björgunarsveitarfólk á Austurlandi hafði í nægu að snúast í hvassviðri og kófi í gærkvöldi. Fjórtán manns í smárútu sem lenti utan vegar í Fagradal var komið til aðstoðar og ferðafólki í nokkrum bílum á Mývatns- og Möðrudalsöræfu.