Snjókorn falla á höfuðborgarsvæðinu frá hádegi í dag og fram undir kvöld. Veðurfræðingur á ekki von á að færð spillist vegna snjókomunnar, miðað við spár, en það gæti þó breyst. Úrkomusvæði nálgast suðvesturhluta landsins. „Svona eins og spárnar líta út akkurat núna þá fer kannski mesti úrkomuþunginn fram hjá borginni, þó að það geti snjóað eitthvað fram á kvöldið,“ segir Þorsteinn V. Jónsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Þorsteinn segir að eins og spár líti út falli mesta úrkoman utan höfuðborgarsvæðisins en vel sé fylgst með spám. Annar úrkomubakki er væntanlegur inn á landið á morgun. „Þetta eru svona svolítið bara sviptingar í veðrinu núna þó að það séu svo sem engar stormviðvaranir eða neitt svoleiðis í kortunum akkúrat núna. Þetta er aðallega þessi snjókoma, hvernig hún skiptist milli landshluta,“ segir Þorsteinn.