Bodø/Glimt varð í gær fyrsta norska fótboltaliðið til að vinna leik í útsláttarkeppni Meistaradeildar Evrópu þegar liðið hafði betur gegn Inter á San Siro vellinum í Mílanó í gær. Eftir að hafa unnið fyrri leikinn í Bodø 3-1 gerði liðið sér lítið fyrir og vann á útivelli 2-1 gegn liðinu sem fór alla leið í úrslitaleik keppninnar í fyrra og er langefst í ítölsku úrvalsdeildinni. Einvígið endaði samanlagt 5-2 sem hefur fengið marga af þekktustu knattspyrnusérfræðingum heims til að bregðast við. Thierry Henry, sérfræðingur CBS sjónvarpsstöðvarinnar í Bandaríkjunum sagði að það væri hægt að tala um leikmenn, peninga, styrkleikamun og allt hvað eina í fótbolta en það er ekkert sem vinnur lið. Við þurfum að muna eitt, þetta er liðsíþrótt sagði Henry sem var yfir sig hrifinn af liðinu frá 53 þúsund manna bænum Bodø í Norður-Noregi. Glimt lék síðast deildarleik í Noregi í nóvember en með sigrinum í gær er ljóst að liðið mætir annað hvort Sporting eða Manchester City um miðjan mars, sem er einmitt í þann mund sem nýtt keppnistímabil er að hefjast í norskum fótbolta. Það mun þýða breytingar á mótafyrirkomulagi Norðmanna en Glimt á að spila gegn Molde í stórleik bikarkeppninnar á milli leikja liðsins í 16-liða úrslitum, það myndi þýða að Glimt fengi aðeins þriggja daga hvíld milli leikja á því tímabili, Nils Fisketjønn mótastjóri norska knattspyrnusambandsins, segir í samo tali við NRK að verið sé að vinna að lausn sem henti öllum en lausnin sé hins vegar ekki orðin opinber enn þar sem öll félög eiga eftir að samþykkja. Þetta myndi einnig þýða að fyrsti leikur Glimt gegn Sarpsborg, sem á að vera 15. mars, verður að öllum líkindum ekki þá. Glimt hefur nú þegar skrifað nafn liðsins stórum stöfum í knattspyrnusögu landsins og ekki sér fyrir endann á ævintýri þess. Á sunnudaginn lauk Vetrarólympíuleikunum á Ítalíu þar sem Norðmenn tóku heim 18 gullverðlaun og 41 verðlaun í heildina sem er met í sögu Vetrarólympíuleika, skammt stórra högga á milli þegar kemur að því að skrifa íþróttasögu landsins og tvö stór afrek núna sem bæði hafa gerst á Ítalíu.