Stjórnvöld í Simbabve hafa slitið viðræðum við Bandaríkin um heilbrigðisaðstoð sem átti að taka við af Þróunarsamvinnustofnun Bandaríkjanna, USAID, sem Bandaríkjaforseti lagði að mestu niður í febrúar í fyrra. AFP vísar í bréf frá utanríkisráðherra Simbabve frá því í desember. Þar segir að Emmerson Mnangagwa, forseti landsins, hefði ákveðið að stöðva viðræðurnar vegna þess að samningur myndi draga sjálfstæði ríkisins. „Simbabve verður að hætta öllum viðræðum við Bandaríkin um viljayfirlýsingu sem blygðunarlaust vegur að og grefur undan fullveldi og sjálfstæði Simbabve,“ segir í bréfinu sem ekki hefur áður verið birt opinberlega. Gagnrýnendur samninganna hafa sagt þá veita bandarískum stjórnvöldum aðgang að heilbrigðisgögnum og stjórn á viðbragði heilbrigðiskerfisins við sjúkdómum. Simbabve hefði með samningunum fengið 367 milljónir dollara í fjárveitingar á fimm ára tímabili, segir Palema Tremont, sendiherra Bandaríkjanna. Semja við hvert og eitt ríki Afríku Bandaríkiin hafa undanfarið ár átt í viðræðum við Afríkuríki um aðstoð í heilbrigðismálum með það að markmiði að draga úr áhrifum Kína í álfunni. Kína hefur lengi fjármagnað uppbyggingu innviða í Afríku með lánveitingum. Fyrsti samningur Bandaríkjanna var undirritaður í Kenía í desember. Síðan þá hefur verið deilt um það fyrir dómi hvort samningurinn brjóti gegn stjórnarskrá landsins. Að minnsta kosti tíu ríki hafa undirritað samning við Bandaríkin. Þar má nefna Rúanda, Úganda, Lesótó og Esvatíní.