10% opinberra starfsmanna verður sagt upp

Ilie Bolojan tekur ríkisreksturinn í Rúmeníu föstum tökum.EPA / CLEMENS BILAN Ilie Bolojan forsætisráðherra Rúmeníu tilkynnti í dag að 10% allra opinberra starfsmanna yrði sagt upp störfum fyrir lok árs. Þetta er hluti af hagræðingaraðgerðum stjórnvalda. Fjárlagahalli er hvergi meiri í Evrópusambandinu en einmitt í Rúmeníu. Bolojan tók við embætti síðasta sumar og hefur ráðist í ýmiss konar aðgerðir, meðal annars hækkað skatta, að því er AFP segir frá. Uppsagnirnar munu taka til um 13 þúsund manns, allt frá efstu lögum embættismannakerfisins niður í lögreglu og heilbrigðisstarfsfólk. Bolojan hefur sagst vilja snúa landinu frá neyslu og hallarekstri yfir í fjárfestingu, framleiðni, útflutning og ábyrgan ríkisrekstur.