Jónatan Þór Magnússon, þjálfari KA/Þórs segir sitt lið mæta pressulaust til leiks gegn besta liði Íslands um þessar mundir, Val, í undanúrslitum bikarkeppninnar í handbolta í kvöld. Eftirvænting er ríkjandi hjá norðankonum fyrir leik kvöldsins og trúin á sigri til staðar.