Tólf störf lögð niður hjá Sjúkratryggingum

Tólf störf verða lögð niður hjá Sjúkratryggingum Íslands, en ákvörðunin miðar að því að laga reksturinn að breyttum áherslum, nýta betur fjármagn og bregðast við undirliggjandi hallarekstri.