Tólf sagt upp hjá Sjúkratryggingum

Tólf starfsmönnum var sagt upp störfum hjá Sjúkratryggingum Íslands í dag. Í tilkynningu frá stofnuninni segir að uppsagnirnar séu til að auka skilvirkni og efla lykilþætti í starfseminni. Fjárhagur stofnunarinnar hefur verið styrktur á undanförnum árum en verkefnin hafa vaxið og erfitt að mæta vextinum innan núverandi fjárhagsramma, segir í tilkynningunni. Stjórn Sjúkratrygginga hefur einnig samþykkt nýtt skipurit sem felur í sér fækkun skipulagseininga og að dregið verði úr yfirbyggingu með fækkun stjórnenda. Skoruðu lægst stórra stofnanna í könnun Sameykis Sigurður H. Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga, segir í samtali við fréttastofu að uppsagnirnar dreifist nokkuð jafnt yfir svið stofnunarinnar. „Það hvernig þetta er gert endurspeglar áherslur stofnunarinnar og hvernig við viljum þróa starfsemina fram á veginn,“ segir Sigurður. Sjúkratryggingar skoruðu lægst þeirra stofnana sem flokkast undir stórar stofnanir í könnun Sameykis. Stofnunin fékk 3,5 í heildareinkunn af 5 mögulegum. Minnsta ánægja mældist meðal starfsmanna með launakjör, þar var einkunnin 1,9. Heimildir fréttastofu herma að uppsagnirnar í dag hafi meðal annars átt við starfsmenn hjálpartækjamiðstöðvarinnar.