„Menn keyri bara eftir aðstæðum og fari varlega“

Akstursskilyrði hafa versnað á höfuðborgarsvæðinu eftir að fór að snjóa um hádegi í dag. Árni Friðleifsson, aðalvarðstjóri hjá umferðardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir að umferðin gangi vel þó hún sé hæg vegna slæms skyggnis. „Þau skilaboð sem við viljum senda til ökumanna eru þau að menn keyri bara eftir aðstæðum og fari varlega.“ Veðurspá gerir ráð fyrir að hlýni í kvöld. „Við höfum svona áhyggjur ef það fer að hlýna eða blotna meira í þessu, að þá gæti þessi snjór sem er kominn, hann gæti svona þjappast og orðið hálka,“ segir Árni. Gul viðvörun einnig við Breiðafjörð og á Vestfjörðum Varað er við varasömum akstursskilyrðum við Breiðafjörð og á Vestfjörðum. Þar er gul veðurviðvörun í gildi þangað til í kvöld. Hálka og skafrenningur er víða á fjallvegum og í Ísafjarðardjúpi á Vestfjörðum. Á Snæfellsnesi er hálka og éljagangur á flestum vegum.