Samþykkt að bjóða út Suðureyjargöng

Færeyska lögþingið samþykkti í dag með talsverðum mun að opinbert félag, P/F Suðuroyartunnilin, fái heimild til að undirbúa, kostnaðargreina og bjóða út verk í tengslum við neðansjávargöng til Suðureyjar, syðstu eyjar Færeyja.