Boðað til kosninga í Færeyjum

Aksel V. Johannesen lögmaður Færeyja tilkynnti á færeyska lögþinginu í dag að boðað yrði til þingkosninga 26. mars. Áður hafði lögþingið samþykkt með talsverðum mun að opinbert félag, P/F Suðuroyartunnilin, fái heimild til að undirbúa, kostnaðargreina og bjóða út verk í tengslum við neðansjávargöng til Suðureyjar, syðstu eyjar Færeyja.