Marius Borg Høiby, stjúpsonur Hákonar krónprins Noregs, segir að þó að hann eigi í vandræðum með skap sitt hafi hann aldrei beitt nokkurn mann ofbeldi. Hann segir framburð fyrrverandi kærustu sinnar um samband þeirra ekki réttan. Høiby er ákærður fyrir fíkniefnabrot, umferðarlagabrot, líkamsárásir og nauðganir. Høiby er í ákærunni sagður hafa beitt Haukland, sem er einn þekktasti áhrifavaldur Noregs, ofbeldi ýmist heima hjá þeim eða á opinberum stöðum á árunum 2022 og 2023. Vísað er að auki til nokkurra dæma þar sem Høiby reiðist af litlu tilefni og ógnar henni. Nokkrum sinnum var hún tekin hálstaki og minnst einu sinni slegin með krepptum hnefa. Haukland, sem sést hér að neðan yfirgefa réttarsalinn, sagði að samband hennar við Høiby hefði einkennst af rifrildum, ótta og ofbeldi. Hún staðfesti framangreind atvik og sagði að eftir að þau fluttu til Skaugum í útjaðri Osló hafi hún einangrast. Þar hafi stór hluti ofbeldisins átt sér stað. Marius Høiby neitar að hafa beitt fyrrverandi kærustu sína ofbeldi eins og hún heldur fram. Hann viðurkennir þó að eiga í vandræðum með skap sitt. Rifist um OnlyFans Eitt dæmi sem Haukland nefnir var að þau rifust eftir að hún kvartaði yfir því að hann væri að greiða fyrir aðgang að síðunni OnlyFans. Hann hafi þá slegið hana með krepptum hnefa og sparkað í hana. Hún hefur krafist þess að Høiby viðurkenni að hafa beitt hana ofbeldi. Høiby kannaðist ekki við stóran hluta þess sem hann er ákærður fyrir gagnvart henni. Haukland hafi hins vegar komið illa fram við sig, slegið sig og öskrað á sig ítrekað. Rifrildin hafi verið hávær af beggja hálfu. Hann kannaðist ekki við að hafa slegið hana eftir OnlyFans-rifrildið, aðeins að þau hafi öskrað hvert á annað. „Ég hef aldrei á ævinni slegið nokkurn mann,“ sagði hann. Hann viðurkenndi hins vegar að eiga í vandræðum með skapið og segja þá hluti sem betra hefði verið að láta ósagt. Meðal annars var spiluð hljóðupptaka af rifrildi milli hans og Haukland þar sem hann kallaði hana öllum illum nöfnum. Høiby var til dæmis ósáttur við að Haukland tók þátt í raunveruleikaþættinum Girls of Oslo, sem var tekinn upp á sex vikna tímabili á Tenerife. Hann viðurkenndi einnig að hafa haldið framhjá henni. Hann sagði einnig að hann hefði líka verið reiður því Haukland athugaði reglulega hvort hann tæki kókaín, oftast með því að reka langar neglur sínar upp í nasir hans. Hugsanlega hafi hann ýtt henni þannig að hún skall á ísskáp, eins og hún hélt fram, en sagði útilokað að hann hefði tekið hana hálstaki eins og hún hélt fram. Marius Høiby neitar að hafa beitt fyrrverandi kærustu sína ofbeldi eins og hún heldur fram. Hann viðurkennir þó að eiga í vandræðum með skap sitt. Athygli vakti í gær að Morten Borg, faðir Mariusar, mætti í réttarsalinn og fylgdist með réttarhöldunum (sjá hér að ofan). Hann á að baki tvo refsidóma fyrir fíkniefnabrot og ofbeldi en hefur síðan þá snúið við blaðinu og lifað réttum megin laganna undanfarin ár. Hann tjáði sig ekkert um málið. Skýrslutökur yfir Marius Høiby halda áfram á morgun.