Boðar til skyndilegra kosninga í Færeyjum

Aksel V. Johannesen lögmaður Færeyja tilkynnti á færeyska lögþinginu í dag að boðað yrði til þingkosninga í Færeyjum 26. mars. Kjörtímabilinu hefði ella lokið í desember.