Töluverðar seinkanir eru hjá Strætó á höfuðborgarsvæðinu vegna snjókomunnar. Jóhannes Svavar Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó, segir færðina gera þeim óleik eins og flestum öðrum í umferðinni. „Það eru seinkanir og hleypur orðið á tugum mínútna. Það er þung umferð og hálka á götum borgarinnar. Þannig að þetta gætu orðið allt frá tuttugu til fjörutíu mínútur á sumum leiðum,“ segir Jóhannes. Aðspurður segist hann ekki hafa fengið fregnir af því að strætisvagnar hafi lent í ógöngum í umferðinni það sem af er degi. Jóhannes hvetur strætófarþega til að sýna biðlund. „Bara að hinkra, vagninn kemur. Svo er hægt að fylgjast með stöðunni í Strætó appinu og fleiru.“