Mínútu þögn vegna fallinna mexíkóskra hermanna

Mínútu þögn verður fyrir æfingaleik íslenska landsliðsins í fótbolta gegn Mexíkó. Á sunnudaginn urðu átök milli mexíkóska hersins og glæpagengisins CJNG. Þar felldu mexíkóskir hermenn glæpaforingjann El Mencho. Mínútuþögnin er til heiðurs þeim hermönnum sem féllu frá í aðgerðinni. KSÍ greinir frá málinu. Glæpagengið CJNG er eitt það umsvifamesta í Mexíkó. Það var stofnað árið 2009 og seldi eiturlyf um gjörvallt Mexíkó auk þess að smygla eiturlyfinu fentanýl yfir til Bandaríkjanna. Bandaríkin buðu upp á 1,8 milljarða greiðslu (15 milljón Bandaríkjadollara) fyrir upplýsingar sem gætu leitt til handtöku hans. Um tíma var tvísýnt hvort að leikurinn færi fram en hann hefst klukkan 02:00 í nótt að íslenskum tíma.