Gögn um á­sökun konu á hendur Trump vantar í Ep­stein-skjölin

Lykilgögn sem tengjast ásökun konu á hendur Donald Trump Bandaríkjaforseta vantar í mikið magn skjala sem bandaríska dómsmálaráðuneytið hefur birt sem tengjast málum kynferðisbrotamannsins Jeffrey Epstein. Konan gaf sig fram eftir að Epstein var handtekinn og sagðist hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi af hálfu bæði Trumps og Epsteins á níunda áratugnum þegar hún var ólögráða.