Griða­staður í amstri dagsins

Þegar skammt var liðið á árið 2019 vakti fyrrverandi biskup Íslands, Agnes M. Sigurðardóttir, máls á því á fundi kirkjuráðs að þjóðkirkjan beitti sér fyrir opnun dagseturs fyrir heimilislausar konur. Hugmyndinni var strax vel tekið og undirbúningur að stofnun þess hófst.