Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, vakti athygli um helgina þegar hann ákvað að heimsækja fyrrum félag sitt Brescia í stað þess að fylgjast með stórleik Arsenal og Tottenham í ensku úrvalsdeildinni. Eftir 2-1 sigur City gegn Newcastle á laugardag flaug Guardiola til Ítalíu þar sem hann horfði á Brescia mæta Pro Patria í ítölsku C-deildinni. Lesa meira