Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um eld í rafmagnstöflu í Vesturbænum um hálf átta í kvöld. Fjórir dælubílar voru sendir á vettvang á Nýlendugötu. Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu, segir atvikið minni háttar. Allir dælubílar voru afturkallaðir, að undanskildum þeim fyrsta sem kom á vettvang. Mynd er úr safni.RÚV / Ragnar Visage