Meistaraverk Gaudí langt komið

Hæsti turn kirkjunnar frægu Sagrada Família í Barcelona á Spáni er tilbúinn. Efri armur krossins á turni Jesú Krists var settur á síðasta föstudag. Kirkjan er sú hæsta í heimi, nú er hæsti punkturinn 172,5 metrar – næstum hundrað metrum hærri en Hallgrímskirkja. Sagrada Familía er meistaraverk arkitektsins Antonis Gaudí. Framkvæmdir hófust 1882, fyrir 144 árum. Stefnt er á að framkvæmdum verði að fullu lokið á næstu 10 árum. Kirkjan er eitt helsta kennileiti Barcelóna og laðar að milljónir ferðamanna á hverju ári.