Síðan innrás Rússa hófst hafa þeir ráðist markvisst á innviði í Úkraínu og þannig svipt milljónir rafmagni og hita í miklum frosthörkum í landinu. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra greindi frá því í fréttum í gær að auk þess að senda búnaðinn setji Ísland átta hundruð milljónir króna í orkutengda sjóði til styrktar Úkraínu. „Öll þjóðfélög í dag ganga fyrir rafmagni. Bæði líf fólks og þeir innviðir sem eru í viðkomandi þjóðfélagi lamast þegar rafmagnið vantar,“ segir Halldór Halldórsson öryggisstjóri hjá Landsneti. Landsnet, Veitur og Norðurorka útvega sjö gáma af búnaði, og senda út í samstarfi við utanríkisráðuneytið. Sjö gámar af raforkubúnaði frá Landsneti, Veitum og Norðurorku verða sendir til Úkraínu í vikunni. Andvirði búnaðarins er talið hlaupa á tugum milljóna en tengivirki úr Hrútafirði er á meðal þess sem fær nýtt líf í Úkraínu. „Það er ýmislegt sem þarna er að finna en það sem kemur frá okkur hjá Veitum eru helst spenna-búnaður,“ segir Jón Trausti Kárason, forstöðumaður rafveitu hjá Veitum. „Íhlutir sem má líkja við lykillíffæri í hjarta- og æðakerfi líkamans. Þetta eru skotmörkin sem verða alltaf fyrst undir í svona stríðsrekstri,“ segir Jón. Tengivirki sem skipt hafði verið út á leið í heild sinni til Úkraínu Tengivirki Landsnets í Hrútafirði var tekið niður og fær nýtt líf í Úkraínu. „Tengivirki sem er búið að vera í rekstri og með reynslu en í góðu formi. Rifum það í heild sinni niður, því við erum búin að byggja nýtt tengivirki, innitengivirki, og erum að flytja það í heilu lagi til Úkraínu,“ segir Halldór. „Treysti því að þetta muni gagnast úkraínsku samfélagi“ Ýmiss konar búnaður frá Norðurorku á Akureyri er kominn til Reykjavíkur og í gám, á leið til Úkraínu. Jón Trausti segir að búnaðurinn muni koma sér sérstaklega vel í kuldanum sem núna er í Úkraínu. „Ég treysti því að þetta muni gagnast úkraínsku samfélagi í að endurreisa ákveðna hluta kerfisins sem hafa verið skemmdir,“ segir hann. Allt notað en í góðu ástandi Allur búnaðurinn er notaður en í góðu ástandi. Andvirði hans er talið hlaupa á tugum milljóna króna. Halldór segir fyrirtækin mjög ánægð að taka þátt í því að aðstoða Úkraínu eins og hægt er. „Og það er voðalega gott að vera í þeirri aðstöðu að hafa búnaðinn tilbúinn til að geta afhent hann,“ segir hann. Það sé skemmtileg tilviljun að það sé til búnaður í góðu lagi sem verið er að skipta út. „Við ákváðum að byggja lokuð tengivirki eftir óveðrið 2019 til að verja okkar þjóð betur. En í aðstæðum eins og í Úkraínu, þar sem veður er ekki eins válynt og á Íslandi, þá passar þetta vel,“ segir Halldór.