Valur í bikarúrslit eftir öruggan sigur gegn norðankonum

Valur mætir Haukum í bikarúrslitum kvenna á laugardaginn. Valur vann KA/Þór með sjö mörkum, 29-22, eftir nokkuð jafnan leik. Norðanstúlkur byrjuðu vel og staðan var jöfn, 8-8, eftir x mínútur. Þá gáfu Valskonur í. Valur leiddi með fjórum mörkum, 14-10, þegar 24 mínútur voru liðnar. Mestur varð munurinn svo fimm mörk, 15-10, þegar Lovísa Thompson braut sér leið í gegn og skoraði. KA/Þór náði að minnka muninn í þrjú mörk rétt fyrir hálfleik og var staðan 16-13 þegar liðin gengu til búningsklefa. Valur gaf í um miðjan seinni hálfleik Norðankonur hófu seinni hálfleik vel og minnkuðu muninn í eitt mark, 16-15, þegar 34 mínútur voru liðnar. Þarna höfðu liðskonur KA/Þór náð 4-0 kafla og Valur ekki skorað í sex mínútur sitt hvorum megin við hálfleikinn. Þá gáfu Valskonur aftur í og leiddu með fjórum mörkum, 20-16, eftir 43 mínútna leik. Munurinn var orðinn átta mörk, 26-18, þegar fimm mínútur lifpu leiks. Að lokum unnu Hlíðarendakonur öruggan 29-22 sigur. Lovísa markahæst Lovísa Thompson fór fyrir Valskonum með sex mörk. Þórey Anna Ásgeirsdóttir fylgdi eftir með 8 mörk. Hafdís Renötudóttir varði tíu skot í marki Vals. Tinna Valgerður Gísladóttir og Susanne Denis Pettersen leiddu sóknarleik KA/Þór. Voru þær með fjögur mörk. Bernadett Leiner varði níu skot í markinu.