Trausti Hjaltason gefur kost á sér til að leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum í sveitarstjórnarkosningum í maí. Hann greindi frá framboðinu í tilkynningu í dag. „Ég tel að við getum styrkt bæði hagsmunagæslu gagnvart ríkinu og rekstur bæjarfélagsins með meiri festu, skýrleika og áframhaldandi samstöðu. Ég kem með reynslu úr atvinnulífi og sveitarstjórn, og ég vil standa fyrir það sem skiptir máli: ábyrgan rekstur, lægri álögur á fjölskyldur og trú á frelsi, framtak og dugnað,“ skrifar Trausti. Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum verður 13. mars. Trausti Hjaltason hefur áður verið bæjarfulltrúi.Trausti Hjaltason