„Þetta var sveiflukenndur leikur,“ sagði Ásdís Þóra Ágústsdóttir, leikmaður Vals, í samtali við mbl.is eftir að liðið tryggði sér sæti í bikarúrslitum með sigri á KA/Þór. Það tók Valsliðið rúmar 40 mínútur að hrista Akureyringa alveg af sér.