Fjórir létust og sex særðust þegar kúbverska strandgæslan hóf skothríð í átt að hraðbáti við strendur landsins í dag. Báturinn er skráður í Flórída en ekki hefur verið greint frá þjóðerni farþeganna sem voru um borð. Í tilkynningu frá innanríkisráðuneyti Kúbu segir að báturinn hafi verið stöðvaður þar sem hann var ólöglega innan landhelgi nærri Villa-Clara héraði, austan við Havana. Þar segir jafnframt að skoti hafi verið hleypt úr hraðbátnum að fyrra bragði með þeim afleiðingum að yfirmaður strandgæslunnar særðist. Þá hafi strandgæslan svarað í sömu mynt og hafið skothríð í átt að hraðbátnum. James Uthmeier, dómsmálaráðherra Flórída, segir á samfélagsmiðlum að málið sæti nú rannsókn sem unnin verði í samvinnu við alríkis-og lögregluyfirvöld. Hann segir kúbversk stjórnvöld ekki traustsins verð. „Ég vona að þetta sé ekki jafn slæmt og við óttumst,“ segir JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, í samtali við fjölmiðla. Vance segir Hvíta húsið enn ekki vita mikið um málið en muni þó fylgjast grannt með framgangi mála.