Danielle Rodriguez.RÚV / Mummi Lú Topplið efstu deildar kvenna í körfubolta unnu leiki sína í fyrstu umferð eftir skiptingu í A og B deild. Njarðvík og KR unnu sigra gegn Grindavík og Val. KR vann Val 68-71 þar sem mikil spenna var undir lokin. Njarðvík vann Grindavík með ellefu stiga mun, 66-77. Njarðvík er með 28 stig í efsta sæti og KR er með 26 stig í öðru. Á eftir fylgja Valur með 24, Haukar með 24 og Grindavík með 22.