Real og PSG áfram í Meistaradeild

Tchouameni leikmaður Real Madrid, til vinstr, og Pavlidis leikmaður Benfica, til hægri, berjast um boltann.EPA / SERGIO PEREZ Real Madrid og PSG eru komin áfram í Meistaradeild Evrópu. Liðin tryggðu sæti sín í 16-liða úrslitum með sigrum gegn Benfica og Monaco. Real vann leik kvöldsins 2-1 og einvígið samanlagt 3-2. PSG og Monaco gerðu 2-2 jafntefli og PSG vann einvígið samanlagt 5-4. Juventus vær nærri ótrúlegri endurkomu gegn Galatasaray. Juventus leiddi 3-0 og því þurfti framlengingu til að knýja fram sigurvegarar. Gestirnir frá Tyrklandi skoruðu tvö mörk í framlengingu og unnu því samanlagt 5-7. Þá tryggði Atalanta sig áfram með vítaspyrnu á sjöttu mínútu uppbótartímans gegn Dortmund. Liðið vann 4-1 og einvígið samanlagt 4-3.