Fékk snjóvegg yfir sig: „Í besta falli vítavert gáleysi“
Vegfarandi segir glæfralegan akstur ökumanns snjóruðningstækis hafa valdið skemmdum á bíl hans á Hafnarfjarðarvegi í kvöld. Mikil hætta hafi verið á ferðum og hann viss um að framrúðan ætlaði að springa. Þá hafi fleiri ökumenn tilkynnt skemmdir.